Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 161 . mál.


Ed.

363. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana, með síðari breytingum.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (EG, MF, VS, JE).



1.     Við 1. gr. 1. mgr. orðist svo:
.      Viðskiptabankar, sparisjóðir og veðdeildir við innlánsstofnanir skulu með þeim takmörkunum, er síðar greinir, skyldir til þess að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum, hvar sem þeirra er aflað, og eignarskatt af öllum eignum sínum, hvar sem þær eru, í samræmi við ákvæði laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
2.     Við 2. gr. Fyrri málsliður orðist svo:
.      Til skattskyldra tekna og eigna aðila skv. 1. gr. þessara laga teljast þó ekki tekjur og eignir stofnlánasjóða sem stofnaðir eru með sérstökum lögum eða með reglugerð á grundvelli heimilda í lögum.